Fyrsta tap Dags með Króatíu

Dagur Sigurðsson á blaðamannafundi króatíska liðsins.
Dagur Sigurðsson á blaðamannafundi króatíska liðsins. Ljósmynd/@HRS_CHF

Lærisveinar Dags Sigurðssonar í króatíska karlalandsliðinu tapaði fyrir Noregi, 32:26, í Arendal í Noregi í gærkvöldi. 

Var leikurinn liður í alþjóðlegu móti, Golden League, sem Króatar eru á ásamt Norðmönnum, Dönum og Argentínu. Mótið er kærkominn undirbúningur fyrir Ólympíuleikana í París  þar sem öll liðin verða í sumar. 

Dagur fór afskaplega vel af stað með króatíska landsliðinu en Króatar unnu sinn riðil í undankeppni Ólympíuleikana og tryggðu sér sæti á leikunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert