KR bætir við sig framherja

Katrín Ómarsdóttir og samherjar fá liðsauka.
Katrín Ómarsdóttir og samherjar fá liðsauka. mbl.is/Hari

KR-ingar hafa fengið til sín framherja fyrir baráttuna í seinni hluta tímabilsins í Pepsi Max-deild kvenna í knattspyrnu.

Hún heitir Gloria Douglas, 27 ára bandarískur framherji sem lék með yngri landsliðum Bandaríkjanna á sínum tíma en hefur spilað í Noregi, Japan, á Írlandi og síðast í Svíþjóð þar sem hún lék með Sandviken í C-deildinni og skoraði 21 mark fyrir liðið í 22 leikjum á tímabilinu 2018.

Douglas er komin með leikheimild og getur spilað með KR-ingum gegn Selfossi á miðvikudagskvöldið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert