Breiðablik deildabikarmeistari 2022

Fyrirliðinn Ásta Eir Árnadóttir með bikarinn í leikslok.
Fyrirliðinn Ásta Eir Árnadóttir með bikarinn í leikslok. mbl.is/Kristinn Magnússon

Breiðablik tryggði sér deildameistaratitil kvenna í fótbolta með 2:1-sigri á Stjörnunni í úrslitaleik Lengjubikarsins í kvöld. Leikið var á Samsung-vellinum í Garðabænum.

Hildur Antonsdóttir kom Breiðabliki yfir strax á 8. mínútu en Jasmín Erla Ingadóttir jafnaði á 17. mínútu. Aðeins þremur mínútum síðar skoraði Taylor Ziemer sigurmark Breiðabliks.

Katrín Ásbjörnsdóttir fékk besta færi Stjörnunnar í seinni hálfleik en Telma Ívarsdóttir í marki Breiðabliks varði glæsilega frá henni þegar skammt var eftir og Breiðablik fagnaði eins marks sigri. 

Breiðablik er deildabikarmeistari 2022.
Breiðablik er deildabikarmeistari 2022. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert