Eins og við erum þekktar fyrir

„Okkur langaði rosalega mikið til að vinna þennan leik,“ sagði Samantha Leshnak, markvörður Keflavíkur, í samtali við mbl.is eftir 1:0-sigur á Stjörnunni í Bestu deildinni í fótbolta í kvöld.

„Við fylgdum leikplaninu og ég er hæstánægð með að við náðum að skora og svo spiluðum við góða vörn, eins og við erum þekktar fyrir,“ bætti hún við.

Keflavík lék betur í seinni hálfleik en þeim fyrri eftir gott spjall í hálfleik. „Við töluðum um ansi mikið, en við vildum einbeita okkur að því sem við gerum best. Við biðum eftir að þær gerðu mistök og við nýttum okkur þau,“ sagði sú bandaríska.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert