Birkir æfði í Noregi

Birkir Bjarnason er leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi.
Birkir Bjarnason er leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi. Ljósmynd/Robert Spasovski

Knattspyrnumaðurinn Birkir Bjarnason æfði í vikunni með norska úrvalsdeildarfélaginu Viking.

Það er norski miðillinn Dagsavisen sem greinir frá þessu en Birkir, sem er 34 ára gamall, er samningsbundinn Adana Demirspor í Tyrklandi út yfirstandandi keppnistímabil.

Birkir hóf meistaraflokksferil sinn í Noregi með Viking en fótbolti.net greinir frá því að Birkir hafi fengið frí í nokkra daga til þess að heimsækja fjölskyldu sína sem búsett er í Noregi. 

Miðjumaðurinn var ekki í leikmannahóp Adana Demirspor gegn Umraiyespor í deildinni í lok febrúar en næstu leikur liðsins er gegn Trabzonspor á sunnudaginn kemur. 

Birkir, sem er leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi með 113 landsleiki, verður að öllum líkindum í landsliðshóp Íslands sem mætir Bosníu og Liechtenstein í undankeppni EM 2024 á útivelli í þessum mánuði en landsliðshópurinn verður tilkynntur á miðvikudaginn kemur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert