Halldór tekur við Breiðabliki

Halldór Árnason og Óskar Hrafn Þorvaldsson á hliðarlínunni hjá Breiðabliki.
Halldór Árnason og Óskar Hrafn Þorvaldsson á hliðarlínunni hjá Breiðabliki. Ljósmynd/Kristinn Steinn

Halldór Árnason hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Breiðabliks í knattspyrnu til næstu þriggja ára.

Halldór er að ljúka sínu fjórða tímabili sem aðstoðarþjálfari Breiðabliks en hann hefur verið hægri hönd Óskars Hrafns Þorvaldssonar enn lengur því þeir unnu áður saman hjá Gróttu.

Halldór Árnason og Eysteinn Pétur Lárusson handsala samninginn.
Halldór Árnason og Eysteinn Pétur Lárusson handsala samninginn. Ljósmynd/Breiðablik

Breiðablik birti eftirfarandi á samfélagsmiðlum sínum fyrir stundu:

Halldór Árnason hefur verið ráðinn sem þjálfari meistaraflokk karla hjá Breiðabliki til næstu þriggja ára. Halldór hefur starfað sem aðstoðarþjálfari meistaraflokksins síðan 2019 og verið mikilvægur hluti af teyminu í kringum meistaraflokk karla og þeim árangri sem liðið hefur náð.
„Ég er afar stoltur af traustinu sem Breiðablik sýnir mér til að stýra meistaraflokki karla og halda áfram að byggja upp það frábæra starf sem hér er í gangi. Ég tek við mjög góðu búi og frábæru liði af Óskari og hlakka til að takast á við þau spennandi og krefjandi verkefni sem okkar bíða,“ segir Halldór Árnason nýráðinn þjálfari Breiðabliks.
Áður en Halldór kom til Breiðabliks þjálfaði hann meðal annars hjá Gróttu, KR og Stjörnunni.
Með ráðningu Halldórs verður haldið áfram þeirri uppbyggingu og framþróun sem við viljum hafa á öllum sviðum í Smáranum og býður Knattspyrnudeild Breiðabliks Halldór velkominn til starfa sem aðalþjálfari meistaraflokks karla.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert