Bestur í fyrstu umferðinni

Arnar Freyr Ólafsson stöðvar Daníel Hafsteinsson í dauðafæri á Akureyri …
Arnar Freyr Ólafsson stöðvar Daníel Hafsteinsson í dauðafæri á Akureyri á sunnudag. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Arnar Freyr Ólafsson, markvörður HK, var besti leikmaðurinn í fyrstu umferð Bestu deildar karla í fótbolta á keppnistímabilinu 2024, að mati Morgunblaðsins.

Arnar átti mjög góðan leik í marki Kópavogsliðsins þegar það náði nokkuð óvæntu jafntefli gegn KA á Akureyri á sunnudaginn, 1:1, og fékk tvö M fyrir frammistöðu sína hjá Morgunblaðinu. Hann varði tvívegis einn á móti sóknarmanni KA og auk þess nokkur skot heimamanna á glæsilegan hátt.

Arnar er leikjahæsti leikmaðurinn í sögu HK í efstu deild en þetta var hans 83. leikur í marki liðsins í deildinni.

Meira um Arnar og úrvalslið fyrstu umferðar má sjá í heild sinni í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert