Frá Hlíðarenda í Kaplakrika

Helena Ósk Hálfdánardóttir, til hægri, er gengin til liðs við …
Helena Ósk Hálfdánardóttir, til hægri, er gengin til liðs við FH á láni frá Val. mbl.is/Óttar Geirsson

Knattspyrnukonan Helena Ósk Hálfdánardóttir er gengin til liðs við uppeldisfélag sitt FH á láni frá Val.

Helena Ósk, sem er 23 ára gömul, gekk til liðs við Val frá Breiðabliki síðasta haust eftir tvö tímabil í Kópavoginum.

Hún er uppalin hjá FH og á að baki 82 leiki í efstu deild fyrir FH, Fylki og Breiðablik þar sem hún hefur skorað níu mörk. Þá á hún að baki 23 landsleiki fyrir yngri landsliðs Íslands þar sem hún hefur skorað fjögur mörk.

Helena Ósk er komin með leikheimild með FH og er því lögleg með liðinu í dag þegar FH heimsækir Tindastól á Sauðárkrók í 1. umferð Bestu deildar kvenna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert