Þorvaldur ræddi við forseta UEFA um vallarmál

Aleksander Ceferin og Þorvaldur Örlygsson.
Aleksander Ceferin og Þorvaldur Örlygsson. Ljósmynd/KSÍ

Þorvaldur Örlygsson, forseti Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, átti í vikunni fund með Aleksander Ceferin, forseta Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA.

Fundurinn fór fram í Bangkok í Taílandi, þar sem ársþing Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA, fer fram.

Í þræði á X-aðgangi KSÍ segir að Þorvaldur og Ceferin hafi rætt ýmis mál, þar á meðal málefni þjóðarleikvangs á Íslandi, erfiða stöðu og framtíð Laugardalsvallar, og möguleikana á stuðningi UEFA við nýjan eða endurbættan leikvang fyrir landslið Íslands.

„Því tengt var rætt mikilvægi þess að vegna góðs árangurs íslenskra félagsliða í UEFA-keppnum þurfi þau að hafa öruggan aðgang að leikvangi sem uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru í riðlakeppni Evrópumóta félagsliða.

Ceferin var áhugasamur um ýmislegt tengt íslenskri knattspyrnu, meðal annars um skipulag yngri flokka, hátt menntunarstig þjálfara og þá góðu hluti sem félög eru að gera í þjálfun barna og unglinga, sem skilar sér m.a. í eftirtektarverðum árangri yngri landsliða Íslands,“ sagði einnig í þræðinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert