Enn einn heimaleikur Vestra fer fram á Þróttarvelli í Laugardalnum þar sem Torfnesvöllur er ekki tilbúinn. Stjarnan sækir Vestra „heim“ sunnudaginn 2. júní.
Vestri hefur þegar skipt á heimaleikjum við KA og spilað tvo heimaleiki á Þróttarvelli en ljóst er að þeir verða að minnsta kosti þrír.
Vestri hefur tapað þremur leikjum í röð en næsti leikur liðsins er útileikur gegn KR næstkomandi laugardag.