Ronaldo vonast eftir langri dvöl á Old Trafford

Cristiano Ronaldo er ánægður með sinn hlut hjá Manchester United.
Cristiano Ronaldo er ánægður með sinn hlut hjá Manchester United. Reuters

Cristiano Ronaldo, portúgalski knattspyrnumaðurinn, segist vonast eftir því að eiga eftir að leika í mörg ár með Manchester United. Hann hefur þráfaldlega verið orðaður við Real Madrid undanfarnar vikur en hann er samningsbundinn United til ársins 2010.

„Það er gott að vita að svona mörg lið hafi áhuga á mér, það sýnir að ég er einhvers virði. En ég er mjög ánægður þar sem ég er og vonast eftir því að spila lengi enn með Manchester United," sagði Ronaldo sem hefur skorað 18 mörk fyrir United í vetur og gerði tvö marka Portúgala á laugardaginn þegar þeir unnu Belga, 4:0, í undankeppni EM.

United vill semja að nýju við Ronaldo, til ársins 2012. „Ég er með góðan samning, fjárhagslega, en það sem skiptir mig mestu máli er að sýna mitt besta á vellinum," sagði Ronaldo.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert