Segja upp samningi við Zouma

Kurt Zouma er samningsbundinn West Ham.
Kurt Zouma er samningsbundinn West Ham. AFP

Íþróttavöruframleiðandinn Adidas hefur sagt upp styrktarsamningi sínum við franska knattspyrnumanninn Kurt Zouma. Þetta kom fram í fréttatilkynningu fyrirtækisins í dag.

Zouma, sem er 27 ára gamall, er samningsbundinn West Ham í ensku úrvalsdeildinni en í gær fór myndband af leikmanninum í dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem hann misþyrmir ketti á heimili sínu.

Leikmaðurinn baðst síðar afsökunar á hegðun sinni en enska félagið sektaði hann um 250.000 pund vegna atviksins. 

Zouma var hins vegar í byrjunarliði West Ham í gær í 1:0-sigri liðsins gegn Watford í ensku úrvalsdeildinni á Ólympíuleikvanginum í Lundúnum og hefur ákvörðun David Moyes, stjóra West Ham, um að spila varnarmanninum verið harðlega gagnrýnd.

„Að vandlega íhuguðu máli þá höfum við ákveðið að segja upp styrktarsamningi okkar við Kurt Zouma,“ segir í tilkynningu Adidas.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert