Mourinho vill taka við United

José Mourinho vill snúa aftur til Manchester United.
José Mourinho vill snúa aftur til Manchester United. AFP

Portúgalski knattspyrnustjórinn José Mourinho hefur mikinn áhuga á að taka við stjórastöðunni hjá Manchester United á nýjan leik, en sæti Erik ten Hag er orðið mjög heitt.

Mourinho stýrði United árin 2016 til 2018 og vann liðið Evrópudeildina, deildabikarinn og Samfélagsskjöldinn undir stjórn Portúgalans.

Eftir tímann hjá United tók hann við Tottenham og síðan Roma en bæði félög hafa síðan rekið Mourinho, sem er nú án félags.

Mancehester Evening News greinir frá að Mourinho hafi mikinn áhuga á starfinu en á sama tíma finnst honum ólíklegt að símtal sé á leiðinni frá forráðamönnum þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert