Mörkin sex á suðurströndinni (myndskeið)

Það vantaði ekki fjörið þegar Brighton og Brentford mættust í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Eftir stórskemmtilegan leik skiptu liðunum með sér stigunum, eftir að hafa skorað þrjú mörk hvort.

Kaoru Mitoma, Danny Welbeck og Alexis Mac Allister gerðu mörk Brighton og Pontus Jansson, Ivan Toney og Ethan Pinnock mörk Brentford.

Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka