Lést í hörmulegu slysi

John Berylson.
John Berylson. Ljósmynd/Milwall

Bandaríkjamaðurinn John Berlyson, stjórnarformaður og eigandi enska knattspyrnufélagsins Milwall, lést í hörmulegu slysi í gær. 

Félagið gaf út yfirlýsingu um andlát Johns í gær en fór ekki nánar í dánarorsök. Hann skilur eftir sig eiginkonuna Amy og þrjú börn, þau Jennifer, James og Elizabeth. 

„John Berylson var frábær maður, ótrúlega náinn fjölskyldu sinni. Hann var hlý og góðhjörtuð manneskja. 

Hann var líflegur maður, hugsaði stöðugt um aðra og hafði mikla þörf að deila gríðarlegri þekkingu sinni og reynslu til að hjálpa fólki,“ sagði Milwall meðal annars í yfirlýsingunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert