Arsenal – Wolves sýndur beint á mbl.is

Arsenal trónir á toppi úrvalsdeildarinnar en liðið tekur á móti …
Arsenal trónir á toppi úrvalsdeildarinnar en liðið tekur á móti Wolves í dag. AFP/Adrian Dennis

Leikur Arsenal og Wolves í 14. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu sem fram fer á Emirates-vellinum í Lundúnum verður sýndur beint hér á mbl.is í dag en hann hefst klukkan 15.

Útsendingin hefst klukkan 14.30 með upphitun á Símanum Sport og er leikurinn sýndur á sérvefnum Enski boltinn hér á mbl.is. Flautað er til leiks klukkan 15.

Arsenal er í efsta sæti deildarinnar með 30 stig en Wolves er í tólfta sætinu með 15 stig.

Smelltu hér til þess að horfa á leik Arsenal og Wolves í beinni útsendingu á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert