Liverpool heimsækir Arsenal í þriðju umferð

Úr leik liðanna á Emirates í fyrra.
Úr leik liðanna á Emirates í fyrra. AFP/Adrian Dennis

Arsenal og Liverpool eigast við í þriðju umferð ensku bikarkeppninnar sem fram fer sjötta og sjöunda janúar. 

Um risa leik strax í þriðju umferð er að ræða en leikið verður á Emirates, heimavelli Arsenal.

Dregið var rétt í þessu en ásamt því mætast einnig úrvalsdeildarliðin Tottenham og Burnley á Tottenham-vellinum, Brentford og Wolves á Brentford-vellinum og Crystal Palace og Everton á Selhurst Park.

Þá mætir Newcastle erkifjendum sínum í Sunderland á útivelli. Manchester United mun heimsækja Wigan, Chelsea fær Preston í heimsókn og Manchester City fær Huddersfield í heimsókn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert