Bournemouth fékk Englandsmeistara Manchester City í heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag og endaði leikurinn með sigri City, 1:0.
Phil Foden skoraði eina mark leiksins á 24. mínútu eftir að hann fylgdi eftir skoti Erling Haaland sem var varið. Boltinn datt fyrir fætur Foden sem setti boltann í autt markið.
Með sigrinum þá komst Manchester City í 59 stig í 2. sæti deildarinnar, stigi á eftir Liverpool. Bournemouth er hinsvegar enn í 14. sæti deildarinnar með 28 stig, átta stigum frá fallsæti.