Manchester United – Fulham sýndur beint á mbl.is

Bruno Fernandes og liðsfélagar hans í Manchester United taka á …
Bruno Fernandes og liðsfélagar hans í Manchester United taka á móti Fulham í dag. AFP/Darren Staples

Leikur Manchester United og Fulham í 26. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu sem fram fer á Old Trafford í Manchester verður sýndur beint hér á mbl.is í dag en hann hefst klukkan 15.

Útsendingin hefst klukkan 14.30 með upphitun á Símanum Sport og er leikurinn sýndur á sérvefnum Enski boltinn hér á mbl.is. Flautað er til leiks klukkan 15.

Manchester United er í sjötta sæti deildarinnar með 44 stig en Fulham er í tólfta sætinu með 29 stig.

Smelltu hér til þess að horfa á leik Manchester United og Fulham í beinni útsendingu á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert