Brassinn klár í slaginn

Casemiro og Harrison Reed liggja eftir að höfuð þeirra skullu …
Casemiro og Harrison Reed liggja eftir að höfuð þeirra skullu saman. AFP/Darren Staples

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Casemiro er klár í slaginn fyrir leik Manchester United gegn Nottingham Forest í 16-liða úrslitum ensku bikarkeppninnar annað kvöld.

Casemiro þurfti að fara meiddur af velli á 53. mínútu í 1:2-tapi fyrir Fulham í ensku úrvalsdeildinni á laugardag.

Fékk miðjumaðurinn höfuðáverka en reyndust meiðslin ekki alvarleg.

„Hann er klár í slaginn. Það blæddi úr honum og þess vegna þurfti hann að fara af velli.

Hann er klár í slaginn á morgun,“ sagði Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, á fréttamannafundi í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert