Arsenal skoraði fimm í fyrri hálfleik (myndskeið)

Arsenal leikur á als oddi í leik sínum gegn Sheffield United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla, þar sem staðan er 5:0 í leikhléi á Bramall Lane í Sheffield.

Skytturnar voru komnar þremur mörkum yfir eftir aðeins stundarfjórðungs leik og bættu svo við tveimur mörkum til viðbótar áður en flautað var til leikhlés.

Martin Ödegaard, Gabriel Martinelli, Kai Havertz og Declan Rice eru allir komnir á blað auk þess sem Jayden Bogle skoraði sjálfsmark.

Enn er allur síðari hálfleikur eftir og aðeins spurning um hversu mörg mörkin verða frá gestunum.

Mörkin fimm sem Arsenal hefur skorað til þessa má sjá í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert