Stuðningsmenn United reiddust aprílgabbi

Manchester United hefur ekki fagnað góðum árangri.
Manchester United hefur ekki fagnað góðum árangri. AFP/Paul Ellis

Stuðningsmenn enska knattspyrnufélagsins Manchester United voru margir hverjir ósáttir við síðuna OptaJoe í dag. 

OptaJoe birtir tölfræði úr enska boltanum á X, áður Twitter, en snið síðunnar var aðeins öðruvísi í dag enda 1. apríl. 

Manchester United hefur ekki fagnað góðum árangri á þessu tímabili en liðið er í sjötta sæti deildarinnar, átta stigum frá Tottenham í fimmta. 

OptaJoe birti færslu í dag þar sem segir: „Manchester United hefur átt flest skot allra liða í deildinni þar sem að ef boltinn hefði farið á markið, hefði það endað með marki.“

Stuðningsmenn United voru margir hverjir ósáttir við þá færslu í athugasemdum og héldu fram að síðan væri að nota félagið til að fá athygli. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert