Sýnt beint frá Manchester á mbl.is

Manchester City fær Luton í heimsókn í dag.
Manchester City fær Luton í heimsókn í dag. AFP/Pierre-Philippe Marcou

Leikur Manchester City og Luton í 33. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, sem fram fer á Etihad-leikvanginum í Manchester, verður sýndur beint hér á mbl.is í dag en hann hefst klukkan 14.

Útsendingin hefst klukkan 13.30 með upphitun á Símanum Sport og er leikurinn sýndur á sérvefnum Enski boltinn hér á mbl.is. Flautað er til leiks klukkan 14.

Manchester City er í 3. sæti deildarinnar með 70 stig, einu minna en Arsenal og Liverpool, en Luton er í 18. og þriðja neðsta sætinu með 25 stig.

Smelltu hér til þess að horfa á leik Manchester City og Luton í beinni útsendingu á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert