FIFA fær samkeppni

Skjáskot úr striðnisstiklu UFL.
Skjáskot úr striðnisstiklu UFL. Skjáskot/YouTube

Tölvuleikurinn FIFA fær nýjan samkeppnisaðila þar sem að Inc Strikerz munu gefa út frían fótboltaleik, UFL, seinna á árinu.

UFL hefur verið í þróun undanfarin sex ár og búist er við því að hann verði gefinn út af Strikerz Inc seinna á árinu eða „þegar hann verður tilbúinn“.

Stríðnisstikla af leiknum var birt í gær og kemur þar fram að fótboltamaðurinn Christiano Ronaldo er prýddur stjarna leiksins sem var búinn til með Unreal Engine.

Hér að neðan má horfa á stikluna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert