Nýr Turtles-leikur frá Tribute Games og Dotemu kom út síðastliðinn fimmtudag, TMNT: Shredder's Revenge, og er hannaður í anda gömlu Turtles-leikjanna.
Í frétt frá IGN kom fram að engir aukapakkar yrðu gefnir út fyrir Shredder's Revenge, en Dotemu svaraði því með tísti sem gaf annað í skyn.
„Smá útskýring hér, það verða engir óhefðbundnir búningar í leiknum við útgáfu og við erum ekki með neina aukapakka á dagskrá eins og er, en við sögðum aldrei „aldrei“,“ segir í tísti frá Dotemu.
„Það veltur á nokkrum atriðum eins og móttökunum sem leikurinn fær og hugmyndum/umsögnum frá þessu æðislega samfélagi.“
Fréttin hjá IGN hefur verið uppfærð með svari Dotemu.