Lanað á andvökunótt um helgina

Ground Zero er lansetur á Grensásvegi.
Ground Zero er lansetur á Grensásvegi. mbl.is/Árni Sæberg

Lansetrið Ground Zero heldur andvökunótt annað kvöld þar sem tölvuleikjaspilarar geta komið saman og gert sér glaðan dag, eða nótt.

Verðskrá Ground Zero hefur ávallt haldið lágum verðum.
Verðskrá Ground Zero hefur ávallt haldið lágum verðum. Grafík/Ground Zero

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem andvökunótt fer fram á Ground Zero en hún fór síðast fram í vor. 

Á Ground Zero er hægt að spila fleiri en 300 tölvuleiki og er því úr nægu að velja, bæði fyrir einstaklinga sem og hópa sem vilja koma saman og spila.

Hægt er að skrá sig í Ground Zero-klúbbinn og fá með því hagstæðari verð, en hér til hliðar má sjá mynd af verðskránni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert