Leikmaður meðal þeirra sem létu lífið

Valorant-leikmaðurinn Gizem Harmankaya „Luie“ er meðal þeirra sem létust eftir …
Valorant-leikmaðurinn Gizem Harmankaya „Luie“ er meðal þeirra sem létust eftir jarðskjálftana í Tyrklandi og Sýrlandi.

Tyrkneski Valorant-leikmaðurinn Gizem Harmankaya „Luie“ var meðal þeirra sem létu lífið eftir jarðskjálftahrinu í Tyrklandi og Sýrlandi fyrr í vikunni.

Yfir 16 þúsund manns hafa fund­ist látn­ir eft­ir jarðskjálft­ann sem skók Tyrk­land og Sýr­land í byrj­un vik­unn­ar. 

Hvatt til að styrkja góðgerðamál

Gizem Harmankaya keppti með liðinu UnknownPros í Valorant en alvarlegar áhyggjur vöknuðu hjá liðinu hennar þegar ekki náðist í hana eftir hamfarirnar.

Tölvuleikjafyrirtækið Riot Games hefur vottað samúð sína og hvatt fólk til þess að taka leggja sitt af mörkunum með því að gefa til góðgerðasamtakanna International Medical Corps.

Samfélagið í sárum

Nokkrir innan tyrkneska Valorant-samfélagsins kölluðu ákaft á hjálp frá yfirvöldum í tæpa tvo sólarhringa áður en lík hennar fannst. Á þriðjudaginn greindi Selin Tok frá því á Twitter að hönd Gizem væri sjáanleg, en að kærasti hennar hafi ekki fengið nein viðbrögð frá henni þegar hann snerti hana.

Fjölmargir úr Valorant-samfélaginu sjálfu hafa nú vottað samúð sína eftir að andlát hennar var staðfest.

„Hvíldu í friði Gizem. Það er mjög þungbært að missa konur innan senunnar. Afrek þín munu aldrei gleymast,“ segir í einni kveðjunni á Twitter.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert