Barcelona meistari meistaranna

Lionel Messi og Arda Turan fagna marki þess síðarnefnda í …
Lionel Messi og Arda Turan fagna marki þess síðarnefnda í leiknum í kvöld. AFP

Barcelona lagði Sevilla að velli, 3:0, þegar liðin mættust í seinni leik liðanna í árlegri viðureign ríkjandi meistara í spænsku efstu deildinni í knattspyrnu karla og spænsku konungsbikarmeistaranna. 

Tyrkneski landsliðsmaðurinn Arda Turan skoraði tvö marka Barcelona í leiknum og argentínski landsliðsframherjinn Lionel Messi bætti við þriðja marki liðsins.

Barcelona bar sigur úr býtum, 2:0, í fyrri leik liðanna og hafði því betur samanlagt með fimm mörkum gegn engu í viðureign liðanna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert