Arnór skoraði í fyrsta leik

Arnór Smárason er nýkominn til Lillestrøm.
Arnór Smárason er nýkominn til Lillestrøm. Ljósmynd/Lilleström

Arnór Smárason fer vel af stað með norska úrvalsdeildarliðinu Lillestrøm. Hann skoraði fyrra mark liðsins í 2:2-jafntefli á heimavelli við Molde í sínum fyrsta leik fyrir liðið. Arnór skipti á dögunum úr Hammarby í Svíþjóð yfir til Lillestrøm.

Arnór lék fyrstu 82 mínúturnar fyrir sitt lið og var skipt af velli fyrir Gary Martin, fyrrverandi leikmann ÍA, KR og Víkings R. Með sigrinum komst Lillestrøm upp úr fallsæti, en liðið er í 13. sæti með 15 stig eftir 17 leiki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert