Tvöfalt hjá Barcelona á Bernabéu

Lionel Messi fagnar Ivan Rakitic eftir mark þess síðarnefnda í …
Lionel Messi fagnar Ivan Rakitic eftir mark þess síðarnefnda í kvöld. AFP

Barcelona vann Real Madrid á Santiago Bernabéu leikvanginum í annað skipti á fjórum dögum í kvöld þegar liðin mættust þar í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu.

Barcelona vann bikarleik liðanna 3:0 á miðvikudagskvöldið en í kvöld mættust þau í deildinni. Þetta var síðasta hálmstrá Real til að vera enn með í baráttunni um spænska meistaratitilinn en fyrir leikinn var Barcelona níu stigum á undan.

Skemmst er frá því að segja að nú skilja 12 stig liðin að. Barcelona vann 1:0 með marki sem Ivan Rakitic skoraði strax á 26. mínútu eftir sendingu frá Sergi Roberto.

Barcelona er komið með 60 stig, Atlético Madrid er með 50 stig og sækir Real Sociedad heim á morgun en Real Madrid er með 48 stig í þriðja sætinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert