Lukaku skoraði fjögur í fyrsta leik

Romelu Lukaku er orðinn leikmaður Inter.
Romelu Lukaku er orðinn leikmaður Inter. AFP

Romelu Lukaku skoraði fjögur mörk í fyrsta leik sínum fyrir Inter Mílanó í 8:0-sigri á D-deildarliði Virtus Bergamo í æfingaleik í dag.

Belgíski framherjinn gekk til liðs við Inter fyrir nokkrum dögum frá Manchester United fyrir 74 milljónir punda en hann kom ekkert við sögu á undirbúningstímabili United og var að spila sínar fyrstu mínútur á tímabilinu í dag. Á sama tíma og United vann Chelsea 4:0 í ensku úrvalsdeildinni skoraði Lukaku sjálfur fjögur mörk.

Keppni í efstu deild á Ítalíu hefst 26. ágúst og verður Lukaku að öllum líkindum í liði Inter sem fær nýliða Lecce í heimsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka