Neymar yfirgefur Frakkland

Neymar Jr í leik með París SG.
Neymar Jr í leik með París SG. AFP/Anthony Wallace

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar hefur samið við sádiarabíska félagið Al-Hilal en hann hefur leikið með franska liðinu París SG síðastliðin sex ár.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Neymar gekk til liðs við París SG frá spænska liðinu Barcelona þar sem hann sló rækilega í gegn og var hann keyptur frá Barcelona á 190 milljónir punda en hann er dýrasti leikmaður sögunnar.

Vera hans hjá Parísarliðinu var þó ekki áfallalaus en hann náði aldrei að vinna Meistaradeildina með félaginu sem var þeirra stærsta markmið.

Neymar er 31 árs gamall og mun nú reyna fyrir sér í sádiarabíu. Hann á að baki 173 leiki með París SG þar sem hann skoraði 118 mörk og lagði upp önnur 70.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert