Krefja Ronaldo um milljarða

Cristiano Ronaldo í leik með Al-Nassr.
Cristiano Ronaldo í leik með Al-Nassr. AFP

Portúgalski knattspyrnumaðurinn Cristiano Ronaldo stendur frammi fyrir hópmálsókn í Bandaríkjunum þar sem farið er fram á skaðabætur sem nema himinháum fjárhæðum.

Rafmyntafjárfestar krefja Ronaldo um rúmlega einn milljarð bandaríkjadala, sem nemur um 138,5 milljörðum íslenskra króna, fyrir hans þátt í að auglýsa Binance, stærstu rafmyntakauphöll heims.

Fjárfestarnir segja að vegna stuðnings Ronaldos við kauphöllina hafi þeir gert fjárfestingar sem hafi valdið þeim miklu fjárhagslegu tjóni.

Málið snýr að því að í nóvember á síðasta ári tilkynnti Binance um sérstakt samstarfsverkefni milli kauphallarinnar og Ronaldo þar sem fólki bauðst að kaupa stafræn skírteini, NFT, sem hluta af nýju safni merkt CR7, vörumerki Portúgalans.

NFT stend­ur fyr­ir „non-fungi­ble token“ og er ein­stakt, sta­f­rænt skír­teini. Slíkt skír­teini veit­ir hand­hafa þess eign­ar­hald á þeim hug­verk­um sem um ræðir hverju sinni, hvort sem það eru mynd­ir, mynd­bönd, hljóð eða önn­ur sta­f­ræn gögn. 

NFT hrunið í verði

Ódýrasta NFT sem hægt var að kaupa í CR7-safninu fyrir ári síðan kostaði 77 bandaríkjadali, um 10.700 íslenskar krónur. Ári síðar kostar ódýrasta NFT í safninu einn bandaríkjadal, 139 íslenskar krónur.

Rafmyntafjárfestarnir segja kynningu Ronaldos á Binance hafa leitt til 500 prósent aukningar á netleitum að kauphöllinni, sem hafi svo leitt til aukinnar fjárfestingar fólks á óskráðum verðbréfum.

Segja þeir að Ronaldo hefði átt að taka fram hvað hann fékk greitt fyrir að kynna Binance, sem hann hafi ekki gert.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert