25 ára lést skyndilega

Agyemang Diawusie í leik með Jahn Reegensburg.
Agyemang Diawusie í leik með Jahn Reegensburg. AFP/John Macdougall

Agyemang Diawusie, fyrrverandi leikmaður þýska knattspyrnufélagsins RB Leipzig, lést skyndilega í vikunni.

Þetta tilkynnti þýska Bundesligan, 1. deildin þar í landi, á samfélagsmiðlum sínum og á heimasíðu sinni í vikunni.

Diawusie, sem er 25 ára gamall, var samningsbundinn Jahn Reegensburg í þýsku C-deildinni þegar hann féll frá en hann var uppalinn hjá RB Leipzig.

„Jahn-fjölskyldan syrgir á þessum erfiðu tímum og hugur okkar er hjá fjölskyldu hans, ástvinum og þeim sem voru honum nákomnir á þessum erfiðu tímum,“ segir í tilkynningu Jahn Reegnsburg.

Andlátið bar að með sviplegum hætti en ekki hefur verið greint frá dánarorsökum Diawusie.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert