Skoraði tvívegis gegn gömlu félögunum

Stuðningsmenn Torino höfðu ástæðu til að gleðjast í kvöld.
Stuðningsmenn Torino höfðu ástæðu til að gleðjast í kvöld. AFP/Marco Bertorello

Kólumbíski sóknarmaðurinn Duvan Zapata hrellti sína gömlu félaga í Atalanta þegar hann skoraði tvívegis fyrir Torino í 3:0-sigri í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Zapata braut ísinn um miðjan fyrri hálfleik áður en Antonio Sanabria tvöfaldaði forystu heimamanna á 56. mínútu.

Zapata kórónaði svo leik sinn með öðru marki sínu og þriðja marki Torino í uppbótartíma venjulegs leiktíma.

Torino fór með sigrinum upp í tíunda sæti deildarinnar, þar sem liðið er nú með 19 stig.

Atalanta er rétt fyrir ofan, með 20 stig í áttunda sæti, og hefði með sigri í kvöld getað komið sér upp í sjötta sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert