Blikar í undanúrslit

Birta Georgsdóttir skoraði sigurmarkið í dag.
Birta Georgsdóttir skoraði sigurmarkið í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Breiðablik tryggði sér sæti í undanúrslitum í deildarbikar kvenna í knattspyrnu í dag eftir 2:1 sigur á Keflavík.

Valur er með 12 stig á toppi riðilsins en með sigrinum jafnar Breiðablik stigafjöldann og bæði liðin fara áfram.

Saorla Lorraine Miller kom Keflavík 1:0 yfir á 66. mínútu eftir sendingu frá Anitu Lind Daníelsdóttir og vandræðagang í vörn Breiðabliks. 

 Agla María Albertsdóttir jafnaði metin fyrir Breiðablik af vítapunktinum  stuttu síðar eftir að Andrea Rut Bjarnadóttir fiskaði víti. 

Birta Georgsdóttir kom inn á í hálfleik og skoraði svo sigurmarkið á 85. mínútu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert