Hákon og félagar upp í Meistaradeildarsæti

Hákon Arnar Haraldsson.
Hákon Arnar Haraldsson. Ljósmynd/Alex Nicodim

Hákon Arnar Haraldsson og liðsfélagar hans í Lille unnu sterkan heimasigur á Lens, 2:1, í frönsku 1. deildinni í fótbolta í kvöld. 

Hákon Arnar var í byrjunarliði Lille líkt og í undanförnum leikjum en hann var tekinn af velli undir lok leiks. 

Lille er komið í þriðja sæti deildarinnar með 47 stig. Efstu þrjú sætin tryggja Meistaradeildarsæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert