Hægt að tilnefna kynsegin fólk í kjöri um íþróttafólk ársins

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata í Kópavogi.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata í Kópavogi. Ljósmynd/Aðsend

Íþróttaráð Kópavogs hefur samþykkt tillögu Pírata um breyttar reglur um kjör á íþróttafólki ársins í bænum, þar sem í fyrsta sinn hefur verið opnað fyrir tilnefningar kynsegin fólks.

Hingað til hefur aðeins verið hægt að tilnefna konur og karla til viðurkenningar en um þessar mundir er kallað eftir tilnefningum í þremur flokkum frá íþróttafélögum Kópavogsbæjar.

Kjör íþróttafólks ársins 2023 fer svo fram í byrjun janúar.

„Þetta er tímabært framfaraskref sem skapar vonandi aukið rými fyrir, og eflir þáttöku, stálpa og kvára í íþróttum.

Ég held að við séum fyrsta sveitarfélagið til þess að ráðast í þessar mikilvægu breytingar og vona að önnur sveitarfélög taki Kópavogsbæ til fyrirmyndar og vinni þannig að aukinni inngildingu í íþróttahreyfingunni!“ skrifaði Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, bæjarfulltrúi Pírata í Kópavogi, í færslu á Facebook.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert