Svindluðu sér inn á Ofurskálaleikinn

Félagarnir tveir á leiknum.
Félagarnir tveir á leiknum. Ljósmynd/@Smivy

Tveir félagar svindluðu sér inn á Ofurskálaleik Kansas City Chiefs og San Fransisco 49ers í Las Vegas í nótt. 

Kansas vann leikinn í framlengingu, 25:22, og eru því NFL-meistarar annað árið í röð. 

Eftirsókn eftir miðum á leikinn er mikil og miðarnir kosta sitt. Samkvæmt tölum kostuðu miðarnir á leikinn á bilinu 5.000 - 18.000 Bandaríkjadala, eða 700.000-2,5 milljónir íslenskra króna. 

Tveir félagar dóu þó ekki ráðalausir og svindluðu sér inn á Allegiant-leikvanginn í Las Vegas sem hýsti leikinn. Komust þeir inn í dulgervi fréttamanna SkySports. Voru þeir með derhúfur og blaðamannapassa sem stóð á SkySports og komust þannig inn. 

Birti annar þeirra mynd af þeim tveimur á samfélagsmiðilinn X, áður Twitter.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert