Féll af baki og lést

AFP/Isaac Lawrence

Ítalski knapinn Stefano Cherchi er látinn, aðeins 23 ára að aldri, eftir að hafa fallið af hesti sínum við keppni í Canberra í Ástralíu í síðasta mánuði.

Þann 20. mars féll hesturinn Hasime við með þeim afleiðingum að Cherchi kastaðist af og hlaut alvarlega höfuðáverka og innri blæðingar.

Var hann fluttur á sjúkrahús og lést í svefni í gær að því er foreldrar Cherchis tilkynntu í gær.

Ítalinn var sigursæll knapi og vann 100 viðburði í Bretlandi áður en hann skipti yfir til Ástralíu í byrjun þessa árs.

Tveir aðrir knapar slösuðust er þeir köstuðust af baki þegar Cherchi slasaðist. Meiðsli þeirra reyndust hins vegar ekki alvarleg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert