Frá Frakklandi til Danmerkur

Kristján Örn Kristjánsson er á förum frá Aix og á …
Kristján Örn Kristjánsson er á förum frá Aix og á leið í dönsku úrvalsdeildina. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Kristján Örn Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, mun ganga í raðir danska félagsins Skanderborg í sumar, en hann hefur undanfarin ár leikið með Aix í Frakklandi.

Kristján verður samningslaus eftir leiktíðina og Århus Stiftstidende greinir frá að næsti áfangastaður skyttunnar verði Skanderborg.

Hann hefur ekki leikið undanfarnar vikur vegna meiðsla í öxl, en leikmaðurinn hefur m.a. verið í endurhæfingu hér á landi.

Skanderborg er sem stendur í tíunda sæti af fjórtán liðum í dönsku úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert