Frestað á Akureyri

KA fær Víking í heimsókn á morgun.
KA fær Víking í heimsókn á morgun. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Leik KA og Víkings úr Reykjavík í úrvalsdeild karla, sem átti að fara fram í KA-heimilinu í kvöld, hefur verið frestað um einn dag vegna veðurs.

Færð á vegum á milli Reykjavíkur og Akureyrar er ekki sem best í dag og því hefur mótanefnd Handknattleikssambands Íslands, HSÍ, ákveðið að fresta leiknum um sólarhring.

Nýr leiktími er klukkan 17.30 á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert