Dagur frábær í stórsigri

Dagur Gautason í leik með KA.
Dagur Gautason í leik með KA. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Dagur Gautason fór á kostum í stórsigri Arendal á Viking, 40:28, í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik í Arendal í dag. 

Dagur skoraði átta mörk fyrir Arendal-liðið sem er í þriðja sæti deildarinnar með 36 stig. 

Árni Bergur Sigurbergsson komst þá ekki á blað fyrir Arendal en Hafþór Már Vignisson er frá út tímabilið vegna meiðsla. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert