Risaleikur í Safamýrinni

Víkingar fá HK í heimsókn.
Víkingar fá HK í heimsókn. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Alvöru fallbaráttuslagur fer fram í tuttugustu umferð úrvalsdeildar karla í handknattleik í Safamýrinni í kvöld. 

Víkingar fá HK í heimsókn klukkan 19.30 en allir sex leikir umferðarinnar fara fram í kvöld. 

Víkingar eru í tíunda og þriðja neðsta sæti með tíu stig. HK er með stigi minna, sæti neðar og því allt undir í Safamýrinni. 

Selfoss, sem er í neðsta sæti deildarinnar með átta stig, fær ÍBV í heimsókn. Topplið FH mætir Haukum í Hafnarfjarðarslag í Kaplakrika. 

Þá heimsækir KA Aftureldingu í Mosfellsbæ, Valur fær Gróttu í heimsókn og Fram og Stjarnan mætast í Úlfarsárdal. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert