HK tryggði sætið – Víkingur og Selfoss fallin

Selfoss og Víkingur eru fallin niður í 1. deild.
Selfoss og Víkingur eru fallin niður í 1. deild. mbl.is/Óttar Geirsson

HK tryggði sér í kvöld áframhaldandi veru í úrvalsdeild karla í handknattleik með því að vinna sterkan útisigur á Stjörnunni, 34:28, í 21. og næstsíðustu umferð deildarinnar.

Á sama tíma töpuðu Víkingur úr Reykjavík og Selfoss leikjum sínum. Þar með er ljóst að Víkingur og Selfoss eru fallin niður í 1. deild.

Grótta og HK eru bæði með 13 stig í níunda og tíunda sæti. Víkingur er í 11. sæti með 10 stig og Selfoss á botninum með átta stig og eiga því ekki lengur möguleika á að halda sæti sínu.

Í leik HK og Stjörnunnar var Júlíus Flosason markahæstur með átta mörk fyrir HK.

Í liði Stjörnunnar var Daníel Karl Gunnarsson markahæstur með sex mörk.

Stórleikur Halldórs dugði ekki til

Víkingur heimsótti Aftureldingu í Mosfellsbæinn og þurfti að sætta sig við tveggja marka tap, 27:25.

Staðan í hálfleik var jöfn, 12:12, og þrátt fyrir hetjulega baráttu Víkinga var niðurstaðan sigur Aftureldingar.

Halldór Ingi Jónasson var markahæstur í leiknum með níu mörk fyrir Víking.

Birgir Steinn Jónsson skoraði átta mörk fyrir Aftureldingu.

Haukar reyndust of sterkir

Selfoss heimsótti Hauka í Hafnarfjörðinn og tapaði með níu mörkum, 33:24.

Staðan var 16:14, Haukum í vil, í hálfleik en í síðari hálfleik sigldu Haukar fram úr og unnu öruggan sigur.

Guðmundur Bragi Ástþórsson var markahæstur í leiknum með átta mörk fyrir Hauka.

Hans Jörgen Ólafsson skoraði sex mörk fyrir Selfoss.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert