Ísfirðingar byrja betur

Harðarmenn byrja betur.
Harðarmenn byrja betur. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

Hörður er kominn yfir í einvígi sínu gegn Þór frá Akureyri í umspili um sæti í efstu deild karla í handbolta eftir heimasigur í fyrsta leik í kvöld, 28:25.

Harðarmenn voru með undirtökin nánast allan tímann og var staðan í hálfleik 14:10. Þór minnkaði muninn og munaði einu marki þegar 12 mínútur voru eftir, 21:20.

Hörður var hins vegar sterkari á lokakaflanum og fagnaði þriggja marka sigri. Næsti leikur fer fram á Akureyri á föstudaginn kemur.

Mörk Harðar: Tugberk Catkin 8, Jose Esteves Neto 5, Otto Karl Kont 4, Jhonatan C. Santos 3, Kenya Kasahara 3, Axel Sveinsson 3, Guilherme Carmignoli Andrade 2.

Varin skot: Jonas Maier 22.

Mörk Þórs: Brynjar Hólm Grétarsson 10, Arnór Þorri Þorsteinsson 7, Aron Hólm Kristjánsson 3, Sigurður Ringsted Sigurðsson 2, Halldór Kristinn Harðarson 1, Þormar Sigurðsson 1, Arnþór Gylfi Finnsson 1.

Varin skot: Tómas Ingi Gunnarsson 11.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert