Íslendingaslagur í bikarúrslitum

Arnar Freyr Arnarsson og Elvar Örn Jónsson eru komnir í …
Arnar Freyr Arnarsson og Elvar Örn Jónsson eru komnir í bikarúrslit Hákon Pálsson

Melsungen tryggði sér sæti í úrslitum þýska bikarsins í handbolta í dag. Arnar Freyr Arnarsson og Elvar Örn Jónsson léku með Melsungen og Teitur Örn Einarsson fyrir Flensburg.

Elvar var atkvæðamestur Íslendingana og skoraði 5 mörk. Arnar Freyr skoraði 2 og Teitur gerði 3 fyrir Flensburg.

Í úrslitum mætir Melsungen öðru Íslendingaliði því Magdeburg sigraði Füchse Berlin í fyrri undanúrslitaleik dagsins. Gísli Þorgeir Kristjánsson, Ómar Ingi Magnússon og Janus Daði Smárason leika fyrir Magdeburg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert