Guðjón Valur skartar litum regnbogans

Guðjón Valur Sigurðsson fer fyrir íslenska liðinu á HM í …
Guðjón Valur Sigurðsson fer fyrir íslenska liðinu á HM í Frakklandi. mbl.is/Golli

Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson heldur áfram að fagna fjölbreytileikanum á handboltavellinum og skartar litum regnbogans á HM í handbolta í Frakklandi. Þó er ekki um fyrirliðabandið að ræða að þessu sinni. 

Guðjón er á skósamningi hjá Mizuno og framleiðandinn hefur útvegað honum skó til að keppa í á HM þar sem regnbogafánann er að finna en hann er alþjóðlegt tákn um baráttu fyrir mannréttindum og væntanlega þekktastur í kringum réttindabaráttu samkynhneigðra. 

Rætt er við Guðjón á vefsíðunni gayiceland.is og þar er hann spurður hvers vegna hann spili með regnbogafánann á skónum á HM. „Ég styð einfaldlega jafnrétti. Þar sem ég er faðir tveggja unglingsstúlkna er ég meðvitaður um kynjamisrétti og ýmsa aðra mismunun en eins og ég hef áður sagt þá finnst mér að kyn, litarháttur, trú eða kynhneigð eigi ekki að skipta máli. Með þessu er ég ekki að reyna að hrópa á athygli eða spila mig sem hetju og ég átta mig á því að mörgum finnst að íþróttaheimurinn eigi ekki að blanda sér í stjórnmál. Ég vil ekki sjá að öll athyglin verði á þessu litla atriði því ég er kominn til Frakklands til að gera mitt besta fyrir landsliðið. Ég er fyrst og fremst íþróttamaður en ef ég get gert eitthvað gagn með því að sýna stuðning á opinberum vettvangi þá geri ég það með ánægju,“ er haft eftir Guðjóni Val Sigurðssyni. 

Þegar EM í handbolta fór fram í Póllandi fyrir ári hugðust bæði Guðjón Valur og Bjarte Myrhol, fyrirliði Noregs, spila með fyrirliðabönd á upphandleggnum sem skörtuðu litum regnbogans. Þeim var hins vegar meinað að gera það þegar til kastanna kom. 

Guðjón segist eiga von á því að andrúmsloftið sé öðruvísi í Frakklandi heldur en í Póllandi. „Ég er ekki að reyna að vera uppreisnarseggur. Ég var pirraður þegar okkur var ekki leyft að spila með fyrirliðaböndin í fyrra og mér finnst því í aðra röndina að því máli sé ólokið, að koma stuðningnum á framfæri.“ 

Guðjón Valur Sigurðsson.
Guðjón Valur Sigurðsson. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert