HM í dag: Erfiðasta próf Þóris

Þórir Hergeirsson fylgist með sínu liði gegn Grænlandi í 1. …
Þórir Hergeirsson fylgist með sínu liði gegn Grænlandi í 1. umferðinni. AFP/Beate Dahle

HM kvenna í handbolta heldur áfram í dag með átta leikjum. Halda C og G-riðlar áfram og þá hefst keppni í A og E-riðlum, þar sem heimakonur standa í ströngu.

Þá mætir Þórir Hergeirsson og norska liðið hans Austurríki, sem er væntanlega þyngsta próf norska liðsins í riðlinum.

A-riðill í Gautaborg, 1. umferð:

17.00 Króatía – Senegal
19.30 Svíþjóð – Kína

C-riðill í Stafangri, 2 .umferð:

Noregur vann Grænland í 1. umferðinni og Austurríki vann Suður-Kóreu.

17.00 Suður-Kórea – Grænland
19.30 Noregur – Austurríki

E-riðill í Herning, 1. umferð:

17.00 Rúmenía – Síle
19.30 Danmörk – Serbía  

G-riðill í Frederikshavn, 2. umferð:

Spánn vann Kasakstan í 1. umferð og Brasilía vann Úkraínu.

17.00 Kasakstan – Brasilía
19.30 Spánn – Úkraína

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert