Liðstyrkur í Skagafjörðinn

Vladimir Anzulovic stýrir Tindastól á komandi keppnistímabili.
Vladimir Anzulovic stýrir Tindastól á komandi keppnistímabili. Ljósmynd/ABA Liga

Bandaríkjamaðurinn Keyshawn Woods er genginn til liðs við karlalið Tindastóls í körfuknattleik og mun hann leika með liðinu á komandi keppnistímabili í úrvalsdeild karla, Subway-deildinni.

Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í kvöld en Woods, sem er 26 ára gamall, hefur meðal annars leikið í efstu deildum Hollands, Póllands og Grikklands á ferlinum.

Keyshawn þykir mjög öflugur varnarmaður og góð skytta,“ segir meðal annars í tilkynningu Tindastóls en Woods lék síðast í Grikklandi.

Tindastóll hafnaði í fjórða sæti deildarkeppninnar á síðustu leiktíð og fór alla leið í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins þar sem liðið tapaði fyrir Valsmönnum 2:3 í frábæru einvígi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert